Stuðningur til sjálfstæðis!
Blindravinnustofan er vinnu- og starfsþjálfunarstaður blindra, sjónskertra og annarra fatlaðra einstaklinga.
Blindravinnustofan gegnir mikilvægu hlutverki í því að skapa blindu, sjónskertu og öðru fötluðu fólki atvinnu og starfa þar að jafnaði 25 til 30 einstaklingar.
Mikilvægasti hluti starfseminnar er pökkun á hreinlætisvörum sem seldar eru undir merkjum Blindravinnustofunnar.
Tilvist Blindravinnustofunnar hvílir því á vilja verslana til að bjóða vörur vinnustofunnar til sölu og vilja neytenda til að kaupa vörurnar. Önnur verkefni vinnustofunnar eru meðal annars ljósmyndaskönnun, pökkun og merkingar á ýmsum vörum fyrir fyrirtæki og stofnanir og kústagerð.
Í gildi er þjónustusamningur við Vinnumálastofnun um hlutverk Blindravinnustofunnar sem verndaðs vinnu-, starfsþjálfunar- og hæfingarstaðar. Blindravinnustofan var stofnuð, af blindu fólki, árið 1941. Í dag er Blindravinnustofan einkahlutafélag að fullu í eigu Blindrafélagsins. Tilgangur félagsins er að veita blindum og sjónskertum atvinnu, þjálfun og endurhæfingu með rekstri heildsölu, innflutningi, smásölu og framleiðslu ræstinga- og hreinlætisvara og skyldri starfsemi.
Með því að kaupa vörur eða þjónustu Blindravinnustofunnar leggur þú þitt af mörkum til þess að styðja blint og sjónskert fólk til sjálfstæðis.