Fólkið okkar

Á vinnustofunni starfa að jafnaði 25 til 30 einstaklingar. Starfsmennirnir eiga það flest sameiginlegt að hafa enga eða skerta sjón, auk þess sem mörg hafa einhvers konar viðbótarfötlun. Sum starfa allan daginn, en önnur hluta úr degi, allt fer eftir aðstæðum og getu hvers og eins. Margir hafa starfað hjá Blindravinnustofunni árum saman, og hafa því mikla reynslu og færni til þeirra starfa sem þar fara fram og hafa fyrirtæki og stofnanir nýtt sér þessa þekkingu í gegnum árin.